Maður ársins á Norðurlandi vestra - Feykir auglýsir eftir tilnefningum

Líkt og undanfarin ár leitar Feykir til lesenda með tilnefningar um mann ársins á Norðurlandi vestra. Ólöf Ólafsdóttir á Tannstaðabakka var kjörin maður ársins fyrir árið 2018 en nú er komið að því að finna verðugan aðila til að taka við nafnbótinni Maður ársins á Norðurlandi vestra 2019.

Tilnefningum skal koma til Feykis á netfangið feykir@feykir.is í síðasta lagi fyrir miðnætti sunnudagskvöldið 15. desember. Tilgreina skal fullt nafn, gera stutta grein fyrir viðkomandi einstaklingi og rökstyðja valið á einhvern hátt.

Fleiri fréttir