Maggi Sverris leggur stígvélin á hilluna

Magnús ásamt konu sinni Ástu Pálínu Ragnarsdóttur. Mynd: Fisk.is.
Magnús ásamt konu sinni Ástu Pálínu Ragnarsdóttur. Mynd: Fisk.is.

Magnús Sverrisson hefur hætt störfum hjá landvinnslu FISK Seafood eftir farsælt starf en hann hóf störf hjá landvinnslunni árið 2011 eftir 30 ára starf hjá Kjötafurðastöð KS. Hann vann einnig í Skagfirðingabúð og við bakaraiðn auk þess sem hann var á sínum tíma stofnandi að kjötvinnslunni Kjötval á Sauðárkróki.

Á heimasíðu Fisk Seafood segir að Magnús hafi aðeins verið 11 ára gamall þegar hann hóf starfsferil sinn hjá frystihúsinu Ísbirninum í Reykjavík og er því með sanni hægt að segja að matvælaiðnaðurinn hafi verið hans starfsvettvangur.

„Nú segist Maggi ætla að njóta meiri samveru með fjölskyldunni og þau hjónin segja ekki útilokað að nú muni þau láta verða af því að prófa golfsettin sem þau eiga nú þegar.

Haldið var kaffisamsæti að þessu tilefni í kaffistofu FISK og viljum við koma á framfæri þökkum frá stjórn og samstarfsfólki FISK fyrir farsæl og góð störf. Við óskum honum velfarnaðar í þeim verkefnum sem hann tekur sér fyrir hendur,“ segir í frétt á Fisk.is.

 

 

Fleiri fréttir