Málþing um stöðu og framtíð smáframleiðenda í Miðgarði
feykir.is
Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla
15.04.2026
kl. 08.02
Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra og Farskólinn - miðstöð símenntunar á Norðurlandi vestra standa fyrir málþingi um stöðu og framtíð smáframleiðenda laugardaginn 18. apríl næstkomandi klukkan 10:00 - 15:00 í Miðgarði í Varmahlíð. Nánari dagskrá málþingsins er hér.
Rekstrarumhverfi smáframleiðenda er víða íþyngjandi, m.a. fjármálaumhverfið og þungt regluverk, en að sama skapi hefur áhugi neytenda og stórmarkaða á vörum þeirra aukist á undanförnum árum. Neytendur sækjast í auknum mæli eftir vörum smáframleiðenda sem hafa gæði, skýran uppruna, rekjanleika og sjálfbærni að leiðarljósi.
