Margmenni í Laufskálarétt

Um 500 hross voru rekin til réttar. Myndir:FE
Um 500 hross voru rekin til réttar. Myndir:FE

Fjöldi fólks og um 500 hross voru saman komin í Laufskálarétt í gær. Talið er smalamenn hafi verið álíka margir eða fleiri en þau hross sem smalað var og auk þess mætti margmenni að réttinni. Veðrið lék við réttargesti og þó golan væri nokkuð köld um tíma var auðvelt að leita í skjól. Um það leiti sem stóðið var rekið til réttar dró ský frá sólu og vermdi mannskapinn. Allt fór vel fram og gengu réttarstörf mjög vel fyrir sig.

Meðfylgjandi myndir voru teknar í Hjaltadalnum í gær.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir