Kosningin stendur yfir til hádegis mánudaginn 14. desember og verður sigurvegarinn kynntur í kjölfarið. Hér má kynna sér aðra þá sem útvaldir voru og neðst í fréttinni gefst fólki kostur á að kjósa sinn mann.
Árleg leit útvarpsstöðvarinnar X977 að Iðnaðarmanni Íslands 2020 stendur nú yfir og hefur hlustendum staðið til boða að koma með tilnefningar undanfarnar vikur. Yfir hundrað ábendingar bárust um iðnaðarmenn sem eiga titilinn skilið og hefur sérstök dómnefnd nú yfirfarið þær og valið úr tíu einstaklinga sem þóttu skara fram úr.
Einn iðnaðarmaður á Norðurlandi vestra er í þessum hópi en það er Margrét Pétursdóttir, hárgreiðslumeistari sem rekur Hárgreiðslustofu Margrétar í Dalatúni á Sauðárkróki. Í meðmælabréfi segir um hana: „Hún hefur staðið vaktina í rúm fjörutíu ár eða síðan 1979. Margrét gerir alla glæsilega, bæði lifandi og liðna. Eins hefur hún ekki sett það fyrir sig að vinna á aðfangadag og gamlársdag svo að allir sem vilja komist vel til fara í sínar veislur. Með þessu öllu saman hefur hún haldið heimili og alið upp fjögur fyrirmyndarbörn.“