Mikið um að vera um helgina

Það verður mikið um að vera um helgina en nú þegar desember er byrjaður er eitthvað skemmtilegt um að vera á hverjum degi, eins og fram kemur á heimasíðu Svf. Skagafjarðar. Í leikskólanum Ársölum verða krakkarnir á eldra stigi með heimatilbúið jólakakóhús á Völlum  í dag og í Húsi frítímans er kökukeppni 8.-10. bekkja kl 20-22.

Markaður verður í húsi Rauða krossins á Sauðárkróki á morgun laugardag og í félagsheimilinu Árgarði.  Aðventusamkomur verða í Barðskirkju og Skagaseli og maddömurnar verða með opið, einnig félagar í Alþýðulist í Galleríinu í Varmahlíð. Fyrirtæki og verslanir verða með opið og mikið um kynningar og almenn huggulegheit.

Á sunnudaginn verða haldnar aðventuhátíðir á Löngumýri, Hofsósi, Hólum, Króknum og Rípurkirkju. Opið verður í Áskaffi í Glaumbæ þar sem hangikjöt verður á boðstólum í hádeginu og opin sýningin á efri hæð hússins.  „Það ættu því flestir að finna eitthvað við sitt hæfi um helgina,“ segir loks á vef sveitarfélagsins.

Fleiri fréttir