Mikið umleikis í Sauðárkrókshöfn

Það er þó nokkuð umleikis í Sauðárkrókshöfn í dag. Verið er að landa úr Klakki SK-5 og Farsæli SH-30. Klakkur er með 116 tonn af þorski og 5,5 tonn af ufsa. Farsæll með um það bil 26 tonn af þorski og 4,5 tonn af ufsa. Þá bíður Málmey eftir löndun.

Flutningaskipið Framnes kom í morgun með 850 tonn af frosinni rækju fyrir Dögun og FIFK-Seafood á Grundarfirði. Frá þessu er sagt á vefsíðu Skagafjarðarhafna.

Fleiri fréttir