Miklir vatnavextir eftir rigningar undanfarið
feykir.is
Skagafjörður
08.07.2022
kl. 11.36
Fram kemur á vef Rúv að miklir vatnavextir séu eftir rigningar að undanförnu. Mest hefur rignt í Norðurárdal og á Öxnadalsheiði og árnar sem þaðan renna í Norðurá eru mjög vatnsmiklar.
Jóhannes Jóhannsson, fyrrum skógarbóndi í Skagafirði, segist aldrei hafa séð svona mikla vexti í Norðurá á svona stuttum tíma.
viðtal við hann má sjá hér.
Fleiri fréttir
-
Pétur Sighvats úrsmiður og stöðvarstjóri á Sauðárkróki | 150 ára afmæli 6. nóvember 2025
Á þessu herrans ári, þann 6. nóvember 2025, verða liðin 150 ár frá fæðingardegi Péturs Sighvats, úrsmiðs og símstöðvarstjóra á Sauðárkróki, sem fæddist þennan dag árið 1875 á Höfða í Dýrafirði. Vegna þessara tímamóta hafa eftirfarandi minningabrot verið tekin saman til þess að rifja upp söguna sem hann var þátttakandi í en sú saga og saga Sauðárkróks og nærsveita áttu sér farsæla samleið.Meira -
Látlaust veður í kortunum
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla 09.11.2025 kl. 08.45 oli@feykir.isEkki er annað að sjá í veðurspám en að skaplegt veður verðir ríkjandi á Norðurlandi vestra næstu vikuna. Alla jafna verður tíðindalítið veður en framan af viku er spáð norðaustanátt en þar sem hún lætur til sín taka má reikna með nokkrum vindi. Hiti verður í kringum frostmark.Meira -
Laufléttur leikur í Laugardalshöll
Það reyndist leikur kattarins að músinni þegar Tindastólsmenn mættu nýliðum Ármanns í Laugardalshöllinni í gærkvöldi. Ármenningar voru án stiga í Bónus deildinni fyrir leik og þeir virtust ekki hafa neina trú á að því að þeir gætu gert Króksurunum skráveifu. Gestirnir tóku rækilega völdin í fyrsta leikhluta og leiddu með 18 stigum að honum loknum. Þrátt fyrir eitt eða tvö áhlaup voru heimamenn aldrei nálægt því að ógna forystu Stólanna sem gáfu svo í á endasprettinum og unnu örugglega. Lokatölur 77-110.Meira -
Lækkun á gjaldskrá sorphirðu og sorpeyðingar fyrir árið 2026
Á fundi landbúnaðar- og innviðanefndar Skagafjarðar sem haldinn var 24. október sl. var samþykkt að lækka gjaldskrá sorphirðu heimila um 4%. Að sögn Einars E. Einarssonar formanns nefndarinnar er lækkunin í raun meiri því inn í þetta kemur líka samningsbundin hækkun til Íslenska Gámafélagsins (ÍG), sem er áætluð um 5% á árinu 2026. Einnig hækkar urðunarkostnaður hjá Norðurá bs. um 4,3% á næsta ári. Raunlækkun sorphirðugjalda er því um 9% að sögn Einars.Meira -
Samdi lagið á gítarinn hans pabba
Emelía Íris Benediktsdóttir oftast kölluð Íris er 15 ára nemandi í tíunda bekk Grunnskóla Húnaþings vestra. Hún er dóttir Sigrúnar Birnu Gunnarsdóttur og Benedikts Guðna Benediktssonar en hann spilar einmitt á gítar og hefur líka mikinn áhuga á tónlist og lítur Íris mikið upp til hans fyrir það að eigin sögn. Eldri systur Írisar eru Rakel Jana og Arnheiður Diljá, þær æfðu m.a. á píanó og Diljá er einnig í söngnámi núna og er sjálf að prófa sig áfram í því að semja tónlist. Eldri bróðir hennar, Ástvaldur Máni, spilar á trommur og yngri fósturbróðir hennar æfir á trommur líka, Darius Gunnar, svo það er óhætt að segja að það sé mikið um tónlist í kringum Írisi.Meira
