„Minni mengun en frá öðrum álverum í Evrópu“

Myndatexti: Gert er ráð fyrir að útlitsleg hönnun verði framkvæmd af íslenskum aðilum og áhersla verður lögð á að hanna mannvirki þannig að þau falli að umhverfinu. Mynd ARK-þing.
Myndatexti: Gert er ráð fyrir að útlitsleg hönnun verði framkvæmd af íslenskum aðilum og áhersla verður lögð á að hanna mannvirki þannig að þau falli að umhverfinu. Mynd ARK-þing.

Eins og greint var frá í Feyki á dögunum var Ingvar Skúlason, framkvæmdastjóri Klappa ehf., gestur ársþings SSNV og fjallaði hann þar um áform um uppbyggingu álvers á Hafurstöðum í Skagabyggð. Greindi Ingvar frá því að sveitarfélögin á Norðurlandi vestra, að undanskyldum Akrahreppi sem ekki hefur verðið boðin þátttaka, og stjórnvöld hefðu undirritað samstarfssamning um uppbyggingu orkufreks iðnaðar á svæðinu.

Umfjöllunin sem birtist í nýjasta tölublaði Feykis í dag  byggir á erindi Ingvars, auk viðbragða sem leitað var eftir hjá nokkrum oddvitum og sveitarstjórum við fyrirspurn Feykis um málið. Í máli Ingvars á ársþinginu kom m.a. fram að Kínverjar eru áhugasamir um að koma til Vesturlanda og reisa álver. Ný kertækni setur Kína í fremstu röð og með hinni nýju tækni minnkar raforkunotkunin um allt að 18% á hvert framleitt tonn, sem gefur möguleika á að greiða hærra raforkuverð. Einnig gerir þetta að verkum að slíkt álver verður samkeppnisfært við álver í Evrópu, sem mörg hver eru orðin yfir 50 ára gömul. 

 

 

Fleiri fréttir