N4 í Norrænt samstarf

Sjónvarpsstöðin N4 á Akureyri hefur fengið styrk frá verkefnasjóði NORA, sem heyrir undir Norrænu ráðherranefndina, til að koma á fót samstarfi um gerð sjónvarpsþáttanna  Á norðurslóðum - I norden. Mynd/N4
Sjónvarpsstöðin N4 á Akureyri hefur fengið styrk frá verkefnasjóði NORA, sem heyrir undir Norrænu ráðherranefndina, til að koma á fót samstarfi um gerð sjónvarpsþáttanna  Á norðurslóðum - I norden. Mynd/N4

Sjónvarpsstöðin N4 á Akureyri hefur fengið styrk frá verkefnasjóði NORA, sem heyrir undir Norrænu ráðherranefndina, til að koma á fót samstarfi um gerð sjónvarpsþáttanna  Á norðurslóðum - I norden, frá Íslandi, Grænlandi, Færeyjum og Norður-Noregi með það að markmiði að kynna líf, menningu, lífshætti og störf á norðurslóðum og miðla því á frummáli á alþjóðlegum vettvangi. 

Samkvæmt fréttatilkynningu frá N4 er María Björk Ingvadóttir, framkvæmdastjóri N4, verkefnastjóri en ritstjórn skipa fulltrúar sjónvarpsstöðva og fréttamiðla á þessum slóðum sem leggja til innslög í þáttinn. Þetta er í fyrsta sinn sem slíkri samvinnu er hrundið af stað í þessum löndum með þessum hætti en fyrirmyndin er sótt í þáttinn Að norðan sem hefur verið á dagskrá N4 frá upphafi útsendinga. Undirbúningur er þegar hafinn og vonir standa til að fyrstu þættirnir verði tilbúnir til sýningar í haust.

María Björk Ingvadóttir

„Umfjöllunarefnið er ákveðið á hverjum stað fyrir sig en áhersla verður lögð á fjölbreytileika, fróðleik, lífshætti. Þó löndin séu landfræðilega nálægt hvert öðru og hafi margra sameiginlegra hagsmuna að gæta, er þekking íbúa innan Nora svæðisins takmörkuð, að ekki sé talað um utan þess. Tungumál svæðanna heyrast ekki oft, þar sem meginþorri fjölmiðlaefnis er á ensku og því er þetta leið til að leyfa þeim að hljóma víðar en í sínu heimalandi,“ segir í fréttatilkynningu. 

Samvinna mikilvæg

Í tilkynningunni segir að með aukinni alþjóðavæðingu eykst mikilvægi þess að þessar fámennu nágrannaþjóðir vinni saman. Þetta eigi sérstaklega við um Nora löndin, sem eru á jaðarsvæði. 

Til að viðhalda áhuga þjóðanna hver á annarri þurfi að vera aðgengilegt efni með upplýsingum um það sem fram fer á Norðurlöndunum. Vesturhluti Norðurlandanna, þ.e.a.s. Strand(Norður)-Noregur, Ísland, Grænland og Færeyjar, eigi það til að gleymast þegar talað er um Norrænt samstarf og enda fjölmiðlum víðast stjórnað frá fjölmennari svæðum. Stórir miðlar dragi gjarnan upp einfaldaða mynd af litlum byggðalögum. Þetta hafi til dæmis háð Grænlandi, þar sem danskir miðlar flytja einhliða fréttir frá grænlensku samfélagi. Litlum staðarmiðlum fækki mjög, sem þýði að þessi skekkja aukist. 

„Það er ekki síst vegna þessa sem N4 ríður á vaðið með þetta verkefni enda eini ljósvakamiðillinn á Íslandi með höfuðstöðvar utan Reykjavíkur og með aðal áherslu á miðlun efnis af landsbyggðunum,“ segir í tilkynningunni.   

Norðurlöndin kynnt

Þá segir jafnfram í tilkynningunni að tilgangur Norrænnar samvinnu sé annars vegar að kynna Norðurlöndin sem góðan valkost þegar kemur að búsetu, starfi og fyrirtækjarekstri og hins vegar að styrkja stöðu Norðurlanda á alþjóðavísu. Þetta geri löndin í gegnum samstarf á ýmsum sviðum, t.d. í umhverfis-, velferðar- og menningarmálum. Hið formlega Norræna samstarf eigi rætur sínar að rekja aftur til ársins 1952 og byggir á sameiginlegu gildismati þjóðanna sem byggja þessi lönd.

„N4 fagnar mjög þessum tímamótum og hlakkar til samstarfs um eflingu norræns sjónvarpsefnis frá norðurslóðum til heimsins,“ segir loks í tilkynningunni. 

Fleiri fréttir