Níundi tími leikskólanna í Skagafirði lægstur

Leikskólinn Ársalir á Sauðárkróki. Mynd: PF.
Leikskólinn Ársalir á Sauðárkróki. Mynd: PF.

Öll stærstu sveitarfélög landsins nema Mosfellsbær hafa hækkað leikskólagjaldskrár sínar frá því í upphafi árs 2017 að því er fram kemur í nýrri úttekt verðlagseftirlits ASÍ. Mesta hækkunin er í Reykjavík, sem rekja má til ríflega fjórðungs hækkunar á fæðisgjaldi. Gjald fyrir átta tíma leikskólavistun með fæði er lægst á Seltjarnarnesi og í Reykjavík en hæst í Vestmannaeyjum og Garðabæ.

Á heimasíðu ASÍ segir að mikill verðmunur sé á hæstu og lægstu gjaldskrá sveitarfélagana fyrir átta tíma vistun ásamt fæði. Hæsta gjaldið fyrir þessa þjónustu er 39.578 kr. í Vestmannaeyjum en lægst á 25.760 kr. á Seltjarnarnesi og er munurinn 13.818 kr. eða tæp 54%. Í Skagafirði er gjaldið kr. 36.215 samkvæmt gjaldskrá fyrir leikskóla Skagafjarðar frá 1. janúar 2017.

Hlutfallslega var mesta hækkunin í Reykjavík 8,6% úr 25.280 kr í 27.447 kr eða um 2.167 kr. á mánuði, í Vestmannaeyjum var hækkunin 2,8% úr 36.260 kr. í 37.270 kr eða 1.010 kr. Hækkunin hjá Sveitarfélaginu Árborg og Garðabæ var 2,4% og 2,3% á Akureyri. Önnur sveitarfélög hækkuðu gjaldskránna minna og var hækkun þeirra á bilinu 0,5% - 1,8%. Þegar könnunin var gerð hafði Mosfellsbær ekki sett fram nýja gjaldskrá fyrir árið 2017.

Níundi tíminn dýrari
Hjá flestum sveitarfélögum er níundi tíminn með hærra tímagjald en hinir átta. Hæsta gjaldið fyrir 9. tímann er greitt í Kópavogi 13.698kr , Reykjavík 11.750kr og Vestmannaeyjum 10.130kr. Lægsta gjaldið er hjá Sveitarfélaginu Skagafirði 2.977kr og á Ísafirði 3.039kr. Akureyri er eina sveitarfélagið í samanburðinum sem býður ekki upp á vistun í níu klukkustundir.

Fleiri fréttir