Ný vinnsluhola boruð við Reykjarhól

Sveitarfélagið Skagafjörður og Ræktunarsamband Flóa og Skeiða ehf undirrituðu nú nýverið undir samning um borun eftir heitu vatni í Varmahlíð.
Fyrirhugað er að bora nýja vinnsluholu við Reykjahól fyrir heitu vatni á allt að 700 metra dýpi. Jarðborinn Trölli hefur nú þegar hafið borun og gengur verkið samkvæmt áætlun. Áætlaður kostnaður hljóðar upp á 50 milljónir króna og er gert ráð fyrir verklokum í lok ágúst samkvæmt samningi.
Steinn Leó Sveinsson, sviðsstjóri veitu- og framkvæmdasviðs segir á vef svf. Skagafjarðar að mikil vinna hafi verið í kortlagningu á svæðinu undanfarið og voru tilraunarholur boraðar síðasta sumar sem gáfu jákvæða niðurstöður „Niðurstöður úr tilraunaholum síðasta sumar voru mjög góðar og standa vonir til að þessi framkvæmd sem farið er í núna auki afhendingaröryggi á heitu vatni fyrir íbúa Sveitarfélagsins Skagafjarðar".
/SMH