Nýr og ferskur andblær Pírata

Eva Pandora Baldursdóttir oddviti Pírata í Norðvestur kjördæmi
Eva Pandora Baldursdóttir oddviti Pírata í Norðvestur kjördæmi

„Ég vil byrja á að þakka öllum, sem hafa tekið sér tíma til að senda mér skilaboð og góðar hugsanir, kærlega fyrir stuðninginn. Ég er upp með mér yfir því trausti sem Píratar á landsvísu hafa sýnt mér með því að velja mig sem oddvita í NV kjördæmi og mun ég gera mitt allra besta til þess að standa undir væntingum,“ segir Eva Pandora Baaldursdóttir nýkjörinn oddviti Pírata í NV kjördæmi í aðsendri grein á Feyki.is.

Hún segir að eftir langt prófkjörskosningaferli sé listinn nú endanlega tilbúinn, að því gefnu að allir taki sitt sæti. Í flokknum séu fulltrúar flestra stétta og hópa samfélagsins og að Píratar vilji vinna að því að bæta samfélagið og vinna að auknum jöfnuði.

„Píratar standa fyrir verndun og eflingu borgararéttinda, gagnrýna hugsun, frelsi og sjálfsákvörðunarrétt borgaranna, beint lýðræði og gagnsæi valdastoða samfélagsins. Það er þessi hugmyndafræði Pírata sem ég heillaðist af í byrjun og mun nú gera mitt besta til þess að vinna að,“ segir Eva Pandora en hún telur að með Pírötum komi nýr og ferskur andblær inn í stjórnmálin á Íslandi þar sem gagnrýnin hugsun er í fyrirrúmi.

Pistil Evu Pandoru má nálgast HÉR

Fleiri fréttir