Nýsköpunarkeppni MAKEathon á Króknum

MAKEathon fer fram á Sauðárkróki, Akureyri, Neskaupstað, Reykjavík og á Vestfjörðum dagana 10-18. september. Um er að ræða nýsköpunarkeppni sem leggur áherslu á að búa eitthvað til í höndunum.

Á heimasíðu SSNV kemur fram að þátttakendur, með mismunandi bakgrunn, munu koma saman og vinna með hráefni sem fellur til í sjávarútvegi með það að markmiði að finna nýstárlegar lausnir til að gera iðnaðinn sjálfbærari.

MAKEathon er opið öllum, ekki er þörf á neinni sérþekkingu á sviði fiskvinnslu. Þátttaka hentar vel með skóla og eða vinnu. 

MAKEathonið fer að mestu fram í gegnum netið en þátttakendur hafa tækifæri til að vinna að hugmyndum sínum í FabLab. Það er þó valkvætt og þátttakendum er velkomið að vinna verkefnið að heiman. Liðin munu fá kassa sem inniheldur verkfæri og hráefni sem þarf til að hanna frumgerð.

Dagskrá og skráning MAKEathon er að finna HÉR

Fyrir skráningu á Sauðárkróki merkja þátttakendur við Akureyri og taka fram í athugasemdum að óskað sé eftir því að sækja hráefnin á Sauðárkróki og nýta sér aðstöðu Fablab. 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir