Oftast strikað yfir nafn Gunnars Braga

Gunnar Bragi Sveinsson ásamt Patta broddgelti á kjörstað sl. laugardag. Mynd: PF
Gunnar Bragi Sveinsson ásamt Patta broddgelti á kjörstað sl. laugardag. Mynd: PF

Gunnar Bragi Sveinsson var sá frambjóðandi í Norðvesturkjördæmi sem oftast var strikaður  út af nöfnum þeirra sem buðu sig fram í kjördæminu til setu á Alþingi sl laugardag. Þetta kemur fram í skýrslu yfirkjörstjórnar til landskjörstjórnar og Hagstofu Íslands og Mbl.is greinir frá.

Samkvæmt Mbl is. strikuðu rúmlega 10% þeirra sem greiddu Framsóknarflokknum atkvæði sitt í NV kjördæmi, nafn Gunnars Braga út eða alls 371 sinni, eða í 10,65% atkvæðanna, sem voru 3.482 tals­ins.

Ellefu strikuðu út nafn Elsu Láru Arnardóttur, sem skipaði 2. sæti framboðslistans og 50 sinnum var nafn Lilju Rafneyjar Magnúsdóttur strikað út.

Aðrir frambjóðendur sem kjósendur sáu ástæðu til að strika út eru:

Bjarni Jónsson, annar á lista Vg, fékk 48 útstrikanir,
Haraldur Benediktsson, oddviti Sjálfstæðisflokks 39 -,
Teitur Björn Einarsson í 3. sæti listans, 21 – og
Þórdísar Kolbrúnar R. Gylfadóttur, í 2. sæti listans, 19 útstrikanir.

Nafn Gunnars Ingibergs Guðmundssonar Pírötum var 16 sinnum strikað út og
Evu Pandoru Baldursdóttur oddvita sama flokks 13 sinnum.  

Þá fékk Guðjón S. Brjánsson, efsti maður á lista Samfylkingarinnar 12 útstrikanir. 

Fleiri fréttir