Öllum boðið í súpu á Mælifelli

Starfsfólk Stá ehf. sem sér um matreiðslu fyrir leikskólann Ársali og Árskóla á Sauðarkróki. Mynd: FB KK restaurant.
Starfsfólk Stá ehf. sem sér um matreiðslu fyrir leikskólann Ársali og Árskóla á Sauðarkróki. Mynd: FB KK restaurant.

Á morgun 5. mars milli klukkan 12 og 15 er öllum, sem tök hafa á, boðið að koma á veitingastaðinn Mælifell við Aðalgötu 7 á Sauðárkróki og þiggja íslenska kjötsúpu eða íslenska fiskisúpu á meðan birgðir endast. Gestum er jafnframt boðið að skoða nýja veislusalinn og framreiðslueldhúsið en gæta þarf þess að virða fjarlægðarmörk, grímuskyldu og sóttvarnarskilyrði.

Mælifell hefur í gegnum tíðina verið aðalskemmtistaður Króksara en hefur nú fengið nýtt hlutverk þar sem búið er að breyta staðnum í veitingahús með rúmgóðum veitingasal og framleiðslueldhús fyrir framleiðslu á skólamat og annarri veitingaþjónustu. Boðið verður upp hádegisverðarþjónustu á staðnum og matarbakkasendingar á vinnustaði, stofnanir og heimili sem og almenna veisluþjónustu hvort sem er á staðnum eða til sendinga hvert sem er á Norðurlandi vestra.

Það er fyrirtækið Stá ehf sem rekur Mælifell og státar sig af því að leggja sig fram um að kaupa hráefni úr héraði og hefur verið í samstarfi við kjötframleiðendur og útgerðir í héraði. Allt grunnhráefni á matseðli vikunnar er úr héraði, skagfirsku matarkistunni.

Fleiri fréttir