Opið hús hjá Verðanda endurnýtingarmiðstöð

Þuríður Helga og Solveig á Þangstöðum, húsnæði Verðanda endurnýtingarmiðstöðvar. Mynd: Þuríður Helga Jónasdóttir.
Þuríður Helga og Solveig á Þangstöðum, húsnæði Verðanda endurnýtingarmiðstöðvar. Mynd: Þuríður Helga Jónasdóttir.

Verðandi endurnýtingarmiðstöð á Hofsósi hafði nýverið opið hús þar sem áhugasamir gestir gátu litið við og séð hvernig þær Verðandakonur, Solveig Pétursdóttir og Þuríður Helga Jónasdóttir, hafa komið sér fyrir í litla húsinu Þangstöðum sem þær fengu afhent fyrir rétt rúmu ári síðan. Þar hafa þær útbúið aðstöðu til að taka á móti og endurbæta eða endurvinna hvers kyns hluti sem þjónað hafa hlutverki sínu hjá fyrri eigendum en gætu gengið í endurnýjun lífdaga í þeirra höndum. Einnig bjóða þær upp á aðstöðu og tæki fyrir þá sem vilja koma og dytta að gömlum munum eða skapa eitthvað nýtt. Verkfærasafn þeirra er smám saman að stækka en þær segjast taka með ánægju á móti smíða- og saumaáhöldum ef fólk þarf að rýma til í geymslunni.

Opnunartíma hjá Verðanda, auk nánari upplýsinga um hvernig starfseminni verður háttað, er hægt að nálgast á Facebooksíðunni Verðandi endurnýtingarmiðstöð og á Instagram.  

Sjá einnig: Ætla að gefa gömlum hlutum framhaldslíf

 

Mynd: Þuríður HelgaSaumahornið. Mynd: FE

 

Mynd: FEÝmsir uppgerðir munir. Mynd: FE

 

Kaffihornið. Mynd: FE

Hefilbekkurinn og smíðaaðstaðan. Mynd: FE

Spáð og spekúlerað. Mynd: Þuríður Helga.

 

 

 

Fleiri fréttir