Opið lengur í dag hjá sýslumanni vegna utankjörfundar atkvæðagreiðslu
Líflegt hefur verið í utankjörfundar atkvæðagreiðslu hjá sýslumanninum á Norðurlandi vestra vegna alþingiskosninganna og stefnir allt í að fleiri kjósi utan kjörfundar nú en í síðustu alþingiskosningum. Á Blönduósi hafa í dag 94 kosið en á Sauðárkróki 276.
Skrifstofur sýslumanns á Sauðárkróki og Blönduósi verða opnar í dag, 27. október, til klukkan 19:00 vegna utan kjörfundar atkvæðagreiðslu í komandi Alþingiskosningunum.
Hægt að kjósa utan kjörfundar hjá skipuðum hreppstjórum á Hvammstanga, Skagaströnd og Hofsósi.