Opinn borgarafundur með oddvitum framboða í NV kjördæmi
RÚV mun standa fyrir opnum borgarafundi með oddvitum framboða í NV kjördæmi í Menntaskólinn í Borgarnesi nk. miðvikudagskvöld. Fundurinn verður í beinni útsendingu á rás 2 og munu þau Anna Kristín Jónsdóttir og Valgeir Örn Ragnarsson stýra fundinum.
Að sögn Heiðars Arnar Sigurfinnssonar kosningastjóra Rúv verður hægt að senda inn spurningar til frambjóðendanna á kosningar@ruv.is. Heiðar segir að átta framboð kjördæmisins hafi staðfest þátttöku; Sjálfstæðisflokkur, Framsókn, Vinstri græn, Samfylking, Viðreisn, Björt framtíð, Dögun og Píratar. Heimilldir herma að Íslenska þjóðfylkingin og Flokkur fólksins stefni að framboði í kjördæminu líka en eru ekki komin fram með lista enn.