Opnir dagar í Háskólanum á Akureyri

Háskólinn á Akureyri
Háskólinn á Akureyri

Í dag, fimmtudag og á morgun, föstudag verða haldnir opnir dagar í Háskólanum á Akureyri. Þar gefst framhaldsskólanemum og öðrum gestum tækifæri á að kynna sér námið við skólann og spjalla við kennara og nemendur um námið. Einnig verður farið í gönguferðir um húsið.

„Þetta er í fyrsta skipti sem dagarnir eru tveir enda er áhuginn mikill, ekki bara hjá útskriftarnemum, heldur erum við í auknum mæli að taka á móti yngra fólki sem er þegar farið að spá í hvað tekur við að stúdentsprófi loknu,“ segir Katrín Árnadóttir, forstöðumaður markaðs- og kynningarsviðs HA. Háskólinn verður opinn almenningi á þessum dögum frá kl. 10 – 12 og fara kynningar nemenda fram í hátíðarsal. Þar á eftir verður gengið með leiðsögn nemenda í litlum hópum um skólann og kíkt inn í verklega tíma, t.a.m. hjá hjúkrunarfræðinemum, sem og í rannsóknarstofurnar. Miðborg – anddyri skólans verður undirlagt básum þar sem deildirnar kynna námsleiðir sínar og hægt verður að prufa og taka þátt í alls kyns leikjum og þrautum.

Eyjólfur Guðmundsson, rektor Háskólans á Akureyri, segir mikilvægt að gefa áhugasömum tækifæri á að ræða við háskólanemendur um námið og fá sýn þeirra á námið og aðstöðuna í HA. „Það skiptir engu máli hversu vel gerðar auglýsingarnar um námið eru – um leið og persónuleg tengsl myndast við svona aðstæður þá verða spurningarnar og svörin einlægari og það ræður oft úrslitum um ákvörðunina um háskólanám“, segir Eyjólfur.

Í dag koma nemendur frá Verkmenntaskólanum á Akureyri, Fjölbrautarskóla Norðurlands vestra og Menntaskólanum á Tröllaskaga. Á föstudag eru það nemendur Menntaskólans á Akureyri, Framhaldsskólans á Húsavík, Framhaldsskólans á Laugum og Verkmenntaskóla Austurlands sem koma í heimsókn.

Allir eru velkomnir á opna daga í Háskólanum á Akureyri.

Fleiri fréttir