Ráðgefandi hópur um aðgengismál

Á fundi byggðaráðs Sveitarfélagsins Skagafjarðar í morgun var lögð fram tillaga um að stofnaður verði ráðgefandi hópur um aðgengismál í sveitarfélaginu fyrir byggðarráð og eignarsjóð.

Hópurinn verði skipaður tveimur fulltrúum sveitarfélagsins og einum fulltrúa frá, annars vegar Sjálfsbjörg og hins vegar frá Þroskahjálp í Skagafirði. Tillagan var samþykkt á fundinum og sveitarstjóra falið að hafa samband við Sjálfsbjörg og Þroskahjálp og óska eftir tilnefningu í hópinn.

Fleiri fréttir