Ráðist í harðar aðgerðir í Skagafirði til að takmarka frekari útbreiðslu Covid-19

Aðgerðastjórn almannavarna á Norðurlandi vestra fundaði í dag vegna fjölda nýrra Covid 19 smita í Skagafirði síðustu daga. Alls hafa sex jákvæð sýni verið greind og á þriðja hundrað manns sett í sóttkví. Mikill fjöldi sýna hafa verið tekin í gær og í dag og ætla má að fjöldi þeirra sé um 400.

Í tilkynningu frá aðgerðastjórn á Facebook-síðu lögreglunnar á Norðurlandi vestra segir að ljósi þessa telji hún að ráðast þurfi í harðar aðgerðir svo unnt sé að takmarka frekari útbreiðslu sýkingarinnar strax og ná þar með tökum á ástandinu og hefur verið ákveðið að fara í eftirfarandi aðgerðir:

 Sóttvarnarlæknir hefur ákveðið að þær tilslakanir á samkomutakmörkunum sem taka gildi mánudaginn 10. maí samkvæmt reglugerð heilbrigðisráðuneytisins muni ekki taka gildi í Sveitarfélaginu Skagafirði og Akrahreppi fyrr en mánudaginn 17. maí.

 Öllu skólahaldi í Árskóla verður aflýst frá og með mánudeginum 10. maí a.m.k. til og með föstudeginum 14. maí.

 Leikskólinn Ársalir verður lokaður á sama tíma, nema fyrir skilgreinda forgangshópa, s.s. heilbrigðisstarfsmenn, lögreglumenn og sjúkraflutningsmenn næstu viku.

 Öll próf í Fjölbrautarskóla Norðurlands vestra á Sauðárkróki verða heimapróf og skólinn lokaður nemendum.

 Heimavist Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra verður rýmd eins og kostur er.

 Sundlaugar sveitarfélagsins í Skagfirði verða lokaðar frá og með 10.maí og til og með sunnudeginum 16.maí.

 Íþróttaæfingar yngri flokka verði óheimilar frá og með 10. maí til og með sunnudeginum 16. maí.

 Öllum íþróttamannvirkjum sveitarfélagsins verður lokað nema fyrir æfingar meistaraflokka frá og með mánudeginum 10.maí til og með sunnudeginum 16.maí

 Íþróttakappleikir fullorðinna verða spilaðir án áhorfenda

 Líkamsræktarstöðvar verða lokaðar frá og með 10. maí til og með sunnudeginum16. maí.

 Skíðasvæðinu í Tindastóli hefur verið lokað.

 Umhverfisdagar Sveitarfélagsins Skagafjarðar sem fara áttu fram 15. maí og plokk-áskorenda keppni milli fyrirtækja sem átti að hefjast núna á mánudag þ.e.a.s á morgun, er frestað um óákveðinn tíma

 Ráðhúsið á Sauðárkróki verður lokað frá og með mánudeginum 10. maí þar til annað verður ákveðið.

 Fundum sveitarstjórnar, nefnda og ráða sveitarfélagsins verður frestað um viku.

 Öllum menningarviðburðum á Sauðárkóki verður aflýst frá og með 10. maí, til og með sunnudeginum 16. maí. Þar með leiksýningum, bíósýningum og öðrum viðburðum þar sem fólk safnast saman.

Jafnframt þessum aðgerðum hafa stofnanir og fyrirtæki í Skagafirði ákveðið að bregðast við með eftirfarandi hætti.

 Afgreiðslutími Skagfirðingabúðar verður lengdur til að dreifa betur verslun og draga úr þeim fjölda sem inni er á hverjum tíma. Viðskiptavinir eru beðnir um að taka tillit til þess.

 Bílaverkstæði, og Vélaverkstæði KS og Tengill verða lokuð frá og með 10. maí, til og með föstudeginum 14. maí. Tengill mun þó starfa eftir neyðarskipulagi fyrirtækisins næstu viku.

 Byggingavöruverslun KS á Eyrinni verður lokuð en afgreiðsla verður í gegnum síma.

 Vörumiðlun mun loka afgreiðslu og jafnframt loka endurvinnslumóttöku en mun afgreiða vörur út úr húsi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir