Rafmagnslaust í Skagafirði aðfararnótt föstudagsins
Vegna vinnu í aðveitustöð Varmahlíð verður rafmagnslaust í Skagafirði aðfararnótt föstudagsins 7. júní frá miðnætti til kl 04:00. Varaafl verður keyrt á Sauðárkrók en ekki er hægt að útiloka rafmagnstruflanir eða mögulega langvarandi rafmagnsleysi.
Í tilkynningu frá RARIK eru notendur beðnir um að spara rafmagn eftir megni.
Fleiri fréttir
-
Skagamenn höfðu betur gegn Stólum í bikarnum
Lið Tindastóls fór á Skagann í dag og lék gegn heimamönnum í ÍA í 32 liða úrsltum Mjólkurbikarsins. Leikið var í Akraneshöllinni og fóru leikar þannig að Skagamenn, sem eru með lið í Bestu deild karla, höfðu betur og enduðu þar með bikarævintýri Stólanna. Lokatölur þó aðeins 3-0.Meira -
Erum allar ready í alvöru seríu - segir Brynja Líf
Það hefur verið gaman að fylgjast með liði Stólastúlkna í körfunni í vetur og nú spilar liðið til úrslita um sæti í Subway-deildinni að ári. Það er mikil breyting á liðinu frá því árið áður, mörg púsl bættust í hópinn síðasta haust sem Helgi þjálfari hefur náð að sameina í heilsteypta mynd. Eitt lykilpúslið er Brynja Líf Júlíusdóttir, 16 ára stúlka frá Egilsstöðum, sem kom á Krókinn til að spila með liði Tindastóls og stunda nám á náttúruvísindabraut og í körfuboltaakademíu FNV. Hún er ein efnilegasta körfuboltastúlka landsins í sínum árgangi og í síðasta leiknum gegn Snæfelli á dögunum þá gerði hún átta af tíu stigum Tindastóls í framlengingu.Meira -
Kvenfélag Svínavatnshrepps hélt upp á 150 ára afmælið með kökuveislu af gamla skólanum
Kvenfélag Svínavatnshrepps hélt upp á 150 ára afmæli sitt 20. apríl sl. Var öllum kvenfélagskonum í Austur-Húnavatnssýslu boðið í kaffi í Dalsmynni. Þar var mikil kökuveisla sem einkenndist af því að hafa kaffibrauð sem hugsanlega hefði getað verið á borðum er kvenfélagið var stofnað.Meira -
Gleðilegt sumar
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla 25.04.2024 kl. 11.55 oli@feykir.is„Það er komið sumar...“ sungu Mannakorn um árið og það á við í dag. Í það minnsta er sumardagurinn fyrsti í dag og þó það sé kannski ekki sami stemmari fyrir þessum degi á þessari öld og var á þeirri síðustu þá fylgir deginum oftar en ekki bjartsýni og ylur í hjarta – já, eiginlega sama hvernig viðrar.Meira -
Giggó-appið snýst um að bjarga sér | Spjallað við Kjartan Hall
Í janúar rak blaðamaður augun í nýtt app sem kallast Giggó sem er sett fram af Alfreð. Þar sem það var gamalkunnur Skagfirðingur út að austan, lista- og íslenskumaðurinn Kjartan Hallur frá Melstað í Óslandshlíðinni, sem kynnti þetta á Facebook, var að sjálfsögðu tilvalið að senda á hann nokkrar spurningar. Kjartan Hallur er í Alfreðs teyminu og segir starf sitt hjá Alfreð fyrst og fremst vera að ritstýra, semja texta og samræma skilaboð fyrir appið, heimasíðu og þjónustuvefi Alfreðs. „Og núna hefur Giggó-appið bæst við á verkefnalistann. Þar undir er heimasíða, bloggskrif og vinna í markaðssetningu á þessu nýja verkfæri fyrir íslenska gigg-hagkerfið,“ segir hann.Meira
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.