Rafmagnsleysi í Skagafirði aðfaranótt föstudagsins 19. júní

Vegna vinnu í aðveitustöð Varmahlíð verða rafmagnstruflanir og rafmagnsleysi í Skagafirði aðfararnótt föstudagsins 19. júní. Rafmagnslaust verður í sveitum frá miðnætti til klukkan 4:00 um nóttina. 

Rafmagnstruflanir verða í Fljótum, Sléttuhlíð, Hofsósi, Unadal og Deildardal klukkan 23:00 að kvöldi fimmtudagsins og aftur að vinnu lokinni um kl. 04:00 á aðfararnótt föstudags. 

Keyrt verður varaafl á Sauðárkróki, Reykjaströnd og á austanverðum Skaga en búast má við truflunum og mögulegu rafmagnsleysi. Íbúar eru hvattir til að stilla rafmagnsnotkun í hóf þessa nótt. 

RARIK Norðurlandi

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir