Rakelarhátíð á sunnudag
Fjáröflunarskemmtun til styrktar Minningarsjóði Rakelar Pálmadóttur verður haldin í Félagsheimilinu Höfðaborg á Hofsósi sunnudaginn 11. október kl. 14:00. Sr. Hjálmar Jónsson flytur hátíðaræðu. Nemendur Grunnskólans og Tónlistarskólans sjá um fjölbreytt skemmtiatriði. Dana Ýr Antonsdóttir tekur nokkur lög.
Miðaverð: Fullorðnir kr. 1.500,-
Börn á grunnskólaaldri kr. 300,
Kaffihlaðborð að dagskrá lokinni.
Posi verður á staðnum.
/Fréttatilk./Grunnskólinn austan Vatna, Hofsósi