Rannís styrkir störf fyrir ellefu háskólanema á Norðurlandi vestra
RANNÍS hefur tilkynnt um niðurstöðu fyrri úthlutunar úr Nýsköpunarsjóði námsmanna fyrir árið 2020. Alls var sótt um rúmlega 243 milljónir króna eða laun í 811 mannmánuði og bárust 189 umsóknir í ár fyrir 281 háskólanema. Að þessu sinni hafði sjóðurinn um 105 milljónir króna til úthlutunar og hlutu alls 73 verkefni styrk. Í styrktum verkefnum eru 125 nemendur skráðir til leiks í alls 350 mannmánuði.
Fimm verkefni sem tengjast starfsemi á Norðurlandi vestra hlutu styrk að þessu sinni. Þau eru:
- Sáttanefndir og störf þeirra í Þingeyjarsýslu 1798- 1936 – Rannsóknarsetur HÍ á Norðurlandi vestra– 1.800 þúsund - 6 mannmánuðir – 2 nemar.
- Sjálfvirk dýptarstýring umhverfismæla í hafi og skráningar í gagnagrunn - Náttúrustofa Norðurlands vestra og Biopol ehf.- 1800 þúsund – 6 mannmánuðir – 2 nemar.
- Hugmyndavinna og framtíðarsýn fyrir húsakynni Kvennaskólans og Textílmiðstöðvar Íslands á Blönduósi – 1500 þúsund – 5 mannmánuðir – 5 nemar.
- Endurnýting ofurtölva til jöfnunar á orkusveiflum – Etix Everywhere Borealis rekstraraðili Gagnaversins á Blönduósi – 900 þúsund – 3 mannmánuðir – 1 nemi.
- Notkun staðbundinna sjálfvirkra myndavéla til vöktunar á landsel í mikilvægum látrum – Hafrannsóknarstofnun, Hvammstanga – 900 þúsund – 3 mannmánuðir – 1 nemi.
Nánari upplýsingar má nálgast hér.