Ráslisti fyrsta móts KS-deildarinnar
KS-Deildinni fer af stað með fjórgangi í Svaðastaðahöllinni á Sauðárkróki nk. miðvikudagskvöld. „Margir góðir hestar eru skráðir og ber þar kannski hæst sigurvegara síðustu tveggja ára í meistaradeildinni fyrir sunnan, Hugleik frá Galtanesi en nú með nýjan knapa Valdimar Bergstað,“ segir í fréttatilkynningu frá KS-Deildinni.
„Ný í deildina kemur Lilja Pálmadóttir með hinn öfluga fjórgangshest Móa frá Hjaltastöðum. Auk þessara tveggja eru margir athyglisverðir hestar sem gaman verður að fylgjast með,“ segir ennfremur í tilkynningunni. Keppni hefst kl. 20:00.
Ráslistinn er eftirfarandi:
- Hanna Rún Ingibergsdóttir/ Íbess-Gæðingur Nótt frá Sörlatungu
- Teitur Árnason/ Top Reiter Kúnst frá Ytri-Skógum
- Barbara Wenzl/Draupnir-Þúfur Hrafnfinnur frá Sörlatungu
- Valdimar Bergsstað/Hrímnir Hugleikur frá Galtanesi
- Guðmundur K Tryggvason/ Efri-Rauðalækur-Lífland Rósalín frá E-Rauðalæk
- Bjarni Jónasson/ Hofstorfan-66°norður Roði frá Garði
- Þorsteinn Björnsson /Draupnir-Þúfur Króna frá Hólum
- Agnar Þór Magnússon/ Efri-Rauðalækur-Lífland Saga frá Skriðu
- Þórarinn Eymundsson/ Hrímnir Taktur frá Varmalæk
- Hallfríður Sigurbjörg Óladóttir/ Top Reiter Óði-Blesi frá Lundi
- Jóhann B. Magnússon/ Íbess-Gæðingur Mynd frá Bessastöðum
- Lilja Pálmadóttir/ Hofstorfan-66°norður Mói frá Hjaltastöðum
- Fanney Dögg Indriðadóttir/ Top Reiter Brúney frá Grafarkoti
- Baldvin Ari Guðlaugsson/ Efri-Rauðalækur-Lífland Öngull frá E-Rauðalæk
- Líney M. Hjálmarsdóttir/Hrímnir Völsungur frá Húsavík
- Elvar E Einarsson/ Hofstorfan-66°norður Gjöf frá Sjávarborg
- Anna Kristín Friðriksdóttir/ Íbess-Gæðingur Glaður frá Grund
- Mette Mannseth /Draupnir-Þúfur Verdí frá Torfunesi