Rennibrautin í sundlauginni í Varmahlíð tekin í notkun

Ný og glæsileg rennibraut við sundlaugina í Varmahlíð. Mynd: Skagafjörður.is.
Ný og glæsileg rennibraut við sundlaugina í Varmahlíð. Mynd: Skagafjörður.is.

Langþráðum áfanga er náð hjá Skagfirðingum því rennibrautin í sundlauginni í Varmahlíð er komin í gagnið og öllum opin frá klukkan 17:00  í dag, fimmtudag. Hér er um fyrstu alvöru rennibraut að ræða í héraðinu þrátt fyrir fjölda sundlauga víðs vegar um fjörðinn.

Á heimasíðu Svf. Skagafjarðar segir að formleg vígsla rennibrautarinnar fari fram nk. mánudag 22. október kl. 16:30. Þar munu þau Sigfús I. Sigfússon, sveitarstjóri Sveitarfélagsins Skagafjarðar og Hrefna Jóhannesdóttir, oddviti Akrahrepps, klippa á borða og segja nokkur orð. Unnur María Gunnarsdóttir, nemandi við Varmahlíðarskóla, vígir brautina og fer fyrstu bununa. Kaffi, kókómjólk og kleinur í boði að vígslu lokinni. Vonast er til að íbúar taki þessari opnun fagnandi og mæti til vígslunnar.

Athugið að sundlaugin verður opin nk. laugardag frá klukkan 10:00-15:00. Vegna framkvæmda við sundlaugina á Sauðárkróki er fyrirhugað að lengja opnunartíma sundlaugarinnar í Varmahlíð fram að áramótum. Opnunartími verður nánar auglýstur síðar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir