Rósa Björk Brynjólfsdóttir yfirgefur Vinstri græn

Í yfirlýsingu sem Rósa Björk Brynjólfsdóttir, þingmaður VG, sendi fjölmiðlum nú í dag kemur fram að hún hafi fundað með Katrínu Jakobsdóttur, formanni VG, og tilkynnt henni um úrsögn sína úr þingflokki Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs og úr hreyfingunni. Brottvísun stjórnvalda á egypsku barnafjölskyldunni sem verða átti af í gær, var kornið sem fyllti mælinn.

„Nýlegir atburðir er varða brottvísun stjórnvalda á barnafjölskyldu sem hefur beðið eftir lausn sinna mála í 25 mánuði og viðbrögð ríkisstjórnar sem VG er í forystu fyrir í því máli, urðu til þess að ég finn endanlega að ég á ekki lengur samleið með þingflokki VG.

Þetta er alls ekki auðveld ákvörðun, sér í lagi gagnvart kjósendum VG og félögum VG í Suðvesturkjördæmi. Ég þakka þeim kærlega fyrir stuðninginn, traustið og samfylgdina síðastliðin ár og vonast eftir því að þau sýni ákvörðun minni skilning.

Ég mun þrátt fyrir þetta halda áfram að vinna af krafti og einurð að góðum málum á Alþingi, sérstaklega er varða mannréttindi, umhverfis- og loftslagsmál, kynjajafnrétti og fleiri góðum málum,“ segir Rósa Björk í yfirlýsingunni.

„Þetta mál er samt þess eðlis að það er ekki hægt annað en að taka afstöðu með mannúðinni, með réttindum barna á flótta sem hér hafa fest rætur og myndað tengsl. Og taka afstöðu gegn því að íslensk yfirvöld vísi á brott börnum og barnafjölskyldum. Á þeim þremur árum sem VG hefur setið í ríkisstjórn hefur lítið sem ekkert miðað í átt að móta hér nýja stefnu í málefnum innflytjenda og hælisleitenda eða að fylgja mannúðarsjónarmiðum í málaflokknum, sem er þó það sem ríkisstjórnin lofaði. Það er mjög miður.“

Rósa Björk segist sem varaformaður flóttamannanefndar Evrópuráðsþingsins hafa fengist mikið við málefni fólks á flótta og sérstaklega mála sem varða barna á flótta sem hún hafi unnið ötullega að. „Í því ljósi finnst mér þessi stefnubreyting og aðgerðaleysi ríkisstjórnarinnar sérstaklega dapurleg og bera vitni um afstöðu sem er langt frá því sem afstaða VG í þessum málaflokki hefur verið hingað til og langt frá því sem við bárum fram bæði í stjórnarandstöðu og fyrir kosningar. Ég óska fyrrum félögum mínum í VG góðs gengis.“

Rósa Björk hefur setið á þingi fyrir Vinstri hreyfinguna – grænt framboð síðan í maí 2016 sem oddviti VG í Suðvesturkjördæmi og 3. þingmaður kjördæmisins. Var varaþingmaður fyrir VG frá árinu 2013 – 2016 og sat í stjórn VG 2015-2017. Er formaður Íslandsdeildar Evrópuráðsþingsins og varaformaður flóttamannanefndar Evrópuráðsþingsins og varaformaður utanríkismálanefndar Alþingis.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir