Rótarýklúbburinn með sitt árlega jólahlaðborð næstu helgi

Jólahlaðborð Rótarýklúbbs Sauðárkróks verður haldið laugardaginn 1. desember nk. kl. 12:00 – 14:00 í íþróttahúsinu á Sauðárkróki.  Jólahlaðborð þetta hefur verið fastur liður í starfi Rótarýklúbbs Sauðárkróks undanfarin ár en klúbburinn fagnar 70 ára afmæli sínu um þessar mundir. 

Jólahlaðborð Rótarýklúbbs Sauðárkróks er ókeypis og öllum opið og er sannkallað fjölskyldu jólahlaðborð enda haldið í hádeginu, laugardaginn 1. desember.  Boðið er upp á hefðbundinn jólamat, síld og rækjurétt, hangikjöt og svínakjöt ásamt meðlæti, laufabrauð og jóladrykk svo eitthvað sé nefnt.

„Allt er þetta ókeypis og allir eru hjartanlega velkomnir,“ segir Ómar Bragi Stefánsson, Rótarýfélagi. „Við innganginn verður söfnunarkassi þar sem þeir sem vilja geta látið eitthvað af hendi rakna til góðra verka í samfélaginu. Það eru Rótarýfélagar sem sjá um undirbúninginn ásamt góðum aðilum í samfélaginu.  Rótarýfélagar bera matinn á borð og sjá til þess að allir njóti stundarinnar. Húsið opnar kl. 12:00 eins og áður sagði og vonast Rótarýfélagar eftir að sjá alla þá sem komu á síðasta ári og nýja gesti bætast við.“

Fleiri fréttir