Rúnar Gíslason nýr gjaldkeri VG

Á landsfundi Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs sem haldinn var á Grand hóteli um helgina var kjörin ný stjórn flokksins. Alls barst 21 framboð í stjórn en hún er skipuð ellefu aðalmönnum og fjórum varamönnum. Rúnar Gíslason, lögreglumaður á Norðurlandi vestra, var á meðal frambjóðenda í gjaldkerastöðuna og hlaut kosningu. „Ég hef haft mikla ánægju af að starfa innan VG til þessa og trúi að ég geti komið að frekara gagni. Það er ástæðan fyrir þessari framhleypni,“ sagði Rúnar í framboðstilkynningu sinni. Bjarni Jónsson, sveitarstjórnarfulltrúi Svf. Skagafjarðar situr í varastjórn.

Katrín Jakobsdóttir var endurkjörin formaður flokksins en hún hefur verið formaður frá árinu 2013. Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, er nýr varaformaður. Katrín hlaut 187 atkvæði eða öll greidd atkvæði. Guðmundur Ingi hlaut 187 atkvæði af 192 greiddum atkvæðum. Fimm skiluðu auðu.

Ingibjörg Þórðardóttir er nýr ritari hreyfingarinnar. Ingibjörg hlaut 119 atkvæði af 192. Una Hildardóttir sem einnig var í framboði hlaut 72 atkvæði. Einn skilaði auðu.

Eins og áður segir er Rúnar Gíslason nýr gjaldkeri hreyfingarinnar. Rúnar hlaut 117 atkvæði af 192. Ragnar Auðun Árnason sem einnig var í framboði hlaut 69 atkvæði. Sex skiluðu auðu.

Meðstjórnendur voru kjörnir en þeir eru:

Ragnar Auðun Árnason.
Sóley Björk Stefánsdóttir.
Berglind Häsler .
Álfheiður Ingadóttir.
Þóra Magnea Magnúsdóttir.
Elva Hrönn Hjartardóttir.
Andrés Skúlason

Varamenn:
Bjarni Jónsson.
Cecil Haraldsson.
Guðný Hildur Magnúsdóttir.
Einar Bergmundur Þorgerðason Bóasson.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir