Safnar fyrir jólagjöfum handa börnum í Afríku

Bornin koma frá erfiðum heimilum en eiga gott athvarf hjá Sólveigu og félögum.
Bornin koma frá erfiðum heimilum en eiga gott athvarf hjá Sólveigu og félögum.

Sólveig Birna Halldórsdóttir frá Sauðárkróki hefur síðustu tvo mánuði dvalið í Suður Afríku og sinnt sjálfboðaliðsstörfum. Hennar hlutverk er að afla matar og elda fyrir börn eftir skóla en það er oft eina máltíð þeirra yfir daginn þar sem heimilisaðstæður þeirra eru mjög bágbornar. Hana langar að safna fyrir jólagjöfum handa þeim.

Sólveig segir að upp hafi komið sú hugmynd að halda litlu jól fyrir krakkana í lok nóvember þar sem krakkarnir hafi aldrei upplifað jól með gjöfum. Þau viti varla hvað það er að fá pakka og þess vegna datt henni í hug að reyna að bæta úr því.

Sólveig Birna sker niður grænmetið í eldhúsinu.Sólveig hefur leitað til fyrirtækja á Sauðárkróki og óskað eftir styrkjum til að útvega jólagjöf í skókassa. Hugmyndin er sú að inni í þessum skókössum væru nauðsynjarvörur eins og tannbursti og tannkrem, bolur, skór og eitthvað dót. Hún segir að markmiðið sé að safna 100 jólagjöfum en hver þeirra mun kosta í kringum 1300 krónur.

Sólveig segir að börnin komi frá mjög erfiðum heimilum þar sem fæst þeirra eigi foreldra og hin eigi þá foreldra sem sinni þeim lítið sem ekkert þar sem um alkahólista eða eiturlyfjaneytendur er að ræða.

Ef einstaklinga eða fyrirtæki sem ekki fá póst frá Sólveigu Birnu, en vilja leggja í púkkið, er hægt að leggja inn á reikning 310-26-1097 og kt. 1710972079. Börnin fá gott atlæti hjá Sólveigu Birnu.

Fleiri fréttir