Sala á Neyðarkallinum að hefjast
Í dag hefst sala á Neyðarkallinum svokallaða, sem er ein af mikilvægustu fjáröflunum björgunarsveita landsins. Félagar í Skagfirðingasveit verða á ferð um Sauðárkrók um helgina, og svo er einnig með aðrar björgunarsveitir á Norðurlandi vestra.
„Það er alltaf tekið mjög vel á móti okkur og þetta er mjög mikilvæg fjáröflun fyrir okkur,“ sagði Baldur Ingi Baldursson, formaður Skagfirðingasveitar, þegar hann hafði samband við Feyki í gær.