Saman gegn ofbeldi
Fyrr í vikunni undirrituðu Sigfús Ingi Sigfússon sveitarstjóri Svf. Skagafjarðar og Gunnar Örn Jónsson, lögreglustjóri á Norðurlandi vestra yfirlýsingu um samstarf um samvinnu í átaki gegn heimilisofbeldi. Um er að ræða átaksverkefni til að auka þekkingarmiðlun og bæta verklag til að taka á heimilisofbeldismálum, veita þolendum og gerendum betri þjónustu og vernda börn sem búa við heimilisofbeldi.
„Það að Lögreglan og Sveitarfélagið Skagafjörður taki höndum saman gefur skýr skilaboð út í samfélagið „um að ofbeldi á heimilum sé ekki liðið“ og gerir okkur sterkari í að takast á við þetta verkefni þannig að það skili meiri árangri,“ segir á heimasíðu sveitarfélagsins.
Samstarfsyfirlýsing
„Sveitarstjórn Sveitarfélagsins Skagafjarðar hefur ákveðið að ganga til samstarfs við Lögreglustjórann á Norðurlandi vestra um samvinnu í átaki gegn heimilisofbeldi. Um nánari útfærslu er vísað til samstarfs lögreglunnar og félagsþjónustunnar um átaksverkefni gegn heimilisofbeldi.
Verkefnið hefst við undirritun og er gert ráð fyrir að það standi í ár og verður árangur metinn að því loknu. Standist verkefnið væntingar að ári liðnu verður það niðurstaða okkar að verklag þetta sé komið til að vera.
Sveitarfélagið Skagafjörður og embætti Lögreglustjórans á Norðurlandi vestra munu vinna saman að þessu verkefni í samráði við hagsmunasamtök og aðra sem geta lagt verkefninu lið.“
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.