Samgöngumál fyrirferðarmikil

Strætó í Varmahlíð. Mynd: KSE
Strætó í Varmahlíð. Mynd: KSE

Samgöngumál voru sem fyrr fyrirferðarmikil í umræðunni á ársþingi SSNV sem haldið var í október. Var ályktað um vegasamgöngur, almenningssamgöngur og netsamgöngur á þinginu.

Í ályktun um vegasamgöngur og vegakerfið í landshlutanum kom fram að afar brýnt væri fyrir íbúa og atvinnulíf að ráðist yrði í markvissa uppbyggingu vegakerfisins. „Nú er svo komið að ástand vega á svæðinu er farið að standa atvinnulífinu, t.d. ferðaþjónustu fyrir þrifum. Einnig heyrist að íbúar veigri sér við að senda börn með skólabílum vegna ástands vega á svæðinu. Um 13% vegakerfis landsins er á Norðurlandi vestra og verður að gera þá kröfu til stjórnvalda að þau tryggi fjármuni til viðhalds og eðlilegrar endurnýjunar samgöngumannvirkja“, segir í ályktun frá ársþinginu.

Þá var fjallað um almenningssamgöngur, en SSNV hefur um nokkurt skeið rekið almenningssamgöngur í samstarfi við önnur landshlutasamtök og byggir samningurinn á samstarfi milli landshlutasamtakanna og Vegagerðarinnar.

„Notendum þjónustunnar hefur fjölgað jafnt og þétt en nú í sumar hefur þeim þó fækkað frá fyrra ári. Þegar landshlutasamtökin tóku við þessum rekstri var gert ráð fyrir að um nokkurskonar sérleyfi væri að ræða en það hefur ekki haldið og hafa nokkrir aðilar keyrt leiðina yfir háannatíma en dregið sig út yfir vetrartímann. Er þetta andstætt hugmyndinni um sérleyfi þar sem skilyrði er m.a. að um heilsársstarfsemi sé að ræða. Gera verður þá kröfu til stjórnvalda að þau tryggi almenningssamgöngur í sessi með traustari lagaumgjörð og/eða tryggari fjármögnun,“ segir í álytkun.

Loks var fjallað um að áætlun ríkisvaldsins, sem nefnd hefur verið Ísland ljóstengt, hefði skilað árangri í bættum netsamgöngum á Norðurlandivestra. „Því miður hafa netsamgöngur ekki verið skilgreindar sem grunnþjónusta og þess vegna er það undir sveitarstjórnum komið á hverjum stað að koma netsambandi til íbúa þar sem fjarskiptafyrirtækin sjá sér ekki hag í að leggja ljósleiðara. Gera verður þá kröfu til stjórnvalda að þau skilgreini netsamgöngur sem grunnþjónustu og að íbúar landsins, hvar sem þeir búa, sitji við sama borð hvað þennan þátt varðar. Aðgangur að hröðu og góðu netsambandi verður sífellt mikilvægari fyrir íbúa og er fullvíst að skortur á því hefur hamlandi áhrif á byggðaþróun,“ segir loks í ályktun frá ársþingi SSNV.

 

Fleiri fréttir