Samlagið stækkar og framleiðsla eykst

Framkvæmdir við nýbygginguna er komnar af stað. Mynd: PF
Framkvæmdir við nýbygginguna er komnar af stað. Mynd: PF

Nú standa yfir framkvæmdir við Mjólkursamlag KS á Sauðárkróki þar sem verið er að byggja nýja mjólkurmóttöku og innvigtunarhús. Fljótlega verður farið í að byggja 1700 fm hús með tengibyggingu. Þar verður framleitt próteinduft sem líklega endar í orkudrykkjum fólks víða um heim. Feykir forvitnaðist um framkvæmdirnar hjá Magnúsi Frey Jónssyni forstöðumanni samlagsins.

Fyrir nokkrum misserum var nýtt og glæsilegt húsnæði byggt fyrir ostagerð samlagsins sem þegar er komin reynsla á, en gamla húsnæðið var orðið of lítið. Það var hins vegar sett í stand fyrir aðra starfsemi og í vetur var svo hluti framleiðslu Vogabæjar flutt norður og í það húsnæði. Magnús Freyr Jónsson, forstöðumaður samlagsins, segir að nú séu framleiddar einhverjar vörur Vogabæjar í samlaginu, einkum E. Finnsson vörumerkið, en í septambar er stefnt á að að klára flutninginn og þá hefst framleiðsla á Voga ídýfum, sýrðum rjóma, AB mjólk og öllum þeim vörum sem seldar hafa verið undir merkjum Mjólku og Vogabæjar. 

Nánar er sagt frá þessu í máli og myndum í nýjasta tölublaði Feykis, sem kom út í gær.

Fleiri fréttir