Samningur um Nýsköpunarsjóð á NLV undirritaður á næstunni
Stjórn SSNV fjallaði á stjórnarfundi sl. þriðjudag um samning við Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið um Nýsköpunarsjóð á Norðurlandi vestra. Stofnun sjóðsins er hluti af tillögum Norðvesturnefndarinnar. Er honum ætlað að styrkja sérstaklega nýsköpunarverkefni sem ungt fólk stendur fyrir.
Þær tillögur Norðvesturnefndarinnar sem til framkvæmda munu koma voru samþykktar af Ríkisstjórn þann 18. september sl. Nokkrar eru þegar komnar til framkvæmda en aðrar í farvatninu.