Sannkölluð sigurstemning þegar bikarinn í Lengjubikarnum var afhentur í dag
Það var sannarlega stemning eftir annars grátlegt tap Stólastúlkna gegn FH á KS vellinum í Lengjubikarkeppninni í dag. Sannkallaður markaleikur sem endaði 4-5 fyrir gestina. En gremjan yfir því svekkelsi var fljót að hverfa þar sem bikarinn fyrir sigur í Lengjudeild síðasta árs var afhentur sigurvegurunum af Króknum í skemmtilegri athöfn stuttu eftir leik.
Meðfylgjandi myndband fangar stemninguna sem ríkti í dag en lýsingu frá leiknum má finna annars staðpar á Feyki.is.