Sauðá opnar í dag

Klukkan 18:00 í dag verða dyrnar í Sauðá opnaðar fyrir almenningi í fyrsta sinn. Um er ræða nýjan veitingastað í minni Sauðárgils sem Feykir fjallaði nánar um fyrr í vikunni. 

Fólk er hvatt til að koma þyrst en ekki svangt, því um mjúka opnun er að ræða. Matseðilinn verður síðan kynntur um miðjan ágúst.

/SMH

 

Fleiri fréttir