Sérstök byggingarnefnd stofnuð fyrir Sundlaug Sauðárkróks
Byggðarráð Sveitarfélagsins Skagafjarðar hefur samþykkt að setja á fót sérstaka byggingarnefnd fyrir Sundlaug Sauðárkróks. Nefndin skal hafa yfirumsjón með fyrirhuguðum viðhalds- og nýframkvæmdum á Sundlaug Sauðárkróks ásamt hönnun.
Í fundargerð byggðaráðs frá sl. miðvikudag segir að byggingarnefndin skuli skipuð oddvitum allra flokka sem sæti eiga í sveitarstjórn Sveitarfélagsins Skagafjarðar. Formaður eignasjóðs er jafnframt formaður bygginganefndarinnar og hefur hann tvöfalt atkvæðavægi.
Með nefndinni skulu vinna sveitarstjóri, sviðsstjóri fjölskyldusviðs, byggingafulltrúi, sviðstjóri veitu- og framkvæmdarsviðs ásamt forstöðumanni íþróttamannvirkja.
„Í vinnu sinni skal nefndin m.a. hafa að leiðarljósi að bæta aðgengismál að lauginni, laga búningsklefa, laga anddyri og bæta aðstöðu barna og barnafólks m.a. með rennibrautum og vaðlaugum,“ segir í fundargerð.
Áætlað er að framkvæmdir við laugina hefjist sumarið 2016.