Sértækur byggðakvóti Byggðastofnunar eykst um 15%
Gunnar Bragi Sveinsson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur úthlutað alls 11.257 tonnum í sértækan og almennan byggðakvóta en ráðstöfunin byggir á þingsályktun 38/145, 2015-2016. Sértækur byggðakvóti Byggðastofnunar eykst um 733 tonn frá fyrra fiskveiðiári og er 5.634 tonn fiskveiðiárið 2016/2017. Stefna stjórnvalda undanfarin ár hefur verið að auka vægi sértæks byggðakvóta enda hefur hann almennt reynst vel sem byggðafestuaðgerð.
Á vef atvinnu- og nýsköpunarráðuneytis segir að aukningin renni til sjö sjávarbyggða og hefur Byggðastofnun auglýst eftir samstarfsaðilum um nýtingu viðbótaraflaheimilda á Þingeyri, Flateyri og Suðureyri í Ísafjarðarbæ, á Raufarhöfn í Norðurþingi og Breiðdalsvík í Breiðdalshreppi. Markmiðið með þessu er að stuðla að sem öflugastri starfsemi í sjávarútvegi til lengri tíma og ná þannig að skapa og viðhalda sem flestum heilsársstörfum fyrir bæði konur og karla við veiðar, vinnslu og afleidda starfsemi í viðkomandi sjávarbyggðum
Almennur byggðakvóti
Almennur byggðakvóti fiskveiðiárið 2016/2017 nemur alls 5.623 tonnum, sem eru 4.398 þorskígildistonn. Byggðakvótinn dregst saman um 1.264 þorskígildistonn frá fyrra fiskveiðiári, sem er samdráttur uppá rúm 22% en lækkunin skýrist m.a. af aukningu til sértæks byggðakvóta og loðnubrests.
Alls er byggðakvóta úthlutað til 31 sveitarfélags og í þeim fengu 45 byggðarlög úthlutun.
Úthlutun byggðakvótans byggir á talnaupplýsingum frá Fiskistofu um samdrátt í botnfiskafla, botnfiskaflamarki og vinnslu botnfisks annars vegar og samdrætti í rækju- og skelvinnslu hins vegar frá fiskveiðiárinu 2006/2007 til fiskveiðiársins 2015/2016.
Hámarksúthlutun til byggðarlags er 300 þorskígildistonn og fá tvö byggðarlög það hámark. Lágmarksúthlutun er 15 þorskígildistonn, eigi byggðarlag á annað borð rétt til úthlutunar, og fá 7 byggðarlög þá úthlutun.
Samkvæmt vef atvinnu- og nýsköpunarráðuneytis fær Skagaströnd stærsta kvótann á Norðurlandi vestra eða 179 þorskígildistonn, Hvammstangi 70, Blönduós 27, og Hofsós 19.