Sigldi á hval í Skagafirði
Brynjar Þór Gunnarsson, akstursíþróttamaður og íbúi á Hofsósi, sigldi á hval á sjóþotu í Skagafirði í gær þegar hann var staddur ásamt félaga sínum úti fyrir firðinum. „Við vorum búnir að vera úti í firðinum í allan dag og vorum bara á leiðinni heim. Þá sjáum við í smá fjarlægð stróka, þar sem nokkrir hnúfubakar voru að blása úr sér lofti. Þannig að við ákváðum að renna þangað niður eftir og skoða þá aðeins,“ sagði Brynjar í samtali við Vísi.is.
„Svo var ég eitthvað að horfa á félaga minn og þá kom hann upp beint fyrir framan mig. Ég náði ekkert að beygja strax og keyrði bara beint upp á bakið á honum,“ sagði Brynjar sem náði að mynda atvikið á Go Pro myndavél.
Hann telur að hnúfubaknum hafi líklegast ekki orðið meint af en brá sjálfum þó heldur betur við áreksturinn. „Maður fékk svona pínu hland fyrir hjartað. Það var ekki hægt að panikka alveg strax, en maður fékk svona pínu adrenalín-kikk eftir á,“ segir Brynjar.
Hann getur þó hlegið að þessu núna og viðurkennir að litlu munaði að hann hafi hreinlega notast við hnúfubakinn sem nokkurs konar stökkpall. „Hefði ég komið aðeins hraðar hefði ég ábyggilega bara stokkið beint yfir hann,“ segir hann.
Brynjar Þór birti myndbandið á Facebook síðu sinni og má sjá hér að neðan.