Skíðalyfturnar virðast alveg hafa sloppið

Skíðalyfturnar virðast hafa sloppið en talsvert mikið af grjóti og drullu er í brekkunni. Mynd: SMH
Skíðalyfturnar virðast hafa sloppið en talsvert mikið af grjóti og drullu er í brekkunni. Mynd: SMH

Eins og Feykir greindi frá í morgun féll aurskriða á skíðasvæðinu í Tindastóli í gærkvöldi um miðnætti. Blaðamaður Feykis náði tali af Sigurði Bjarna Rafnssyni, formanni skíðadeildar Tindastóls, áður en hann og Viggó Jónsson lögðu af stað upp í brekkur skíðasvæðisins til að skoða aðstæður eftir aurskriðuna. 

"Nú erum við ekki búnir að fara uppeftir til að kanna þetta en mér finnst líklegast að lónið hafi yfirfyllst og jafnvel veggurinn hafi gefið sig með þeim afleiðingum að skriðan fer af stað."

Sigurður er þarna að tala um lón sem þeir á skíðasvæðinu safna vatni í fyrir snjóframleiðsluna sína. 

"Það hefur verið svo ofboðsleg sólbráð í gær, það var svo heitt. Annað hvort hefur veggurinn gefið sig eða lónið bara hreinlega yfirfyllst. Við ætlum að labba upp eftir núna og kanna það".

Skíðalyfturnar virðast hafa sloppið, en óvíst er með snjóframleiðslukerfið. Fyrir liggur mikil vinna við að grjóthreinsa brekkuna en mikið grjót og stórt hefur komið í hana með skriðunni.

"Eitthvað af efni sem við eigum fyrir snjógirðingarnar er farið og trúlega hefur eitthvað af snjógirðingunum eyðilagst en lyfturnar virðast alveg hafa sloppið sem betur fer og húsið. Maður veit ekki alveg hvað hefur gerst fyrir snjóframleiðslukerfið, hvort að það hafi eitthvað tjónast. En svo náttúrulega liggur gríðarleg vinna fyrir í því að grjóthreinsa brekkuna, það var ekki einn steinn hérna sko, við viljum ekki hafa þetta svona. Það þarf svo gríðarlega mikinn snjó ef við ætlum að fara yfir þetta grjót svo hægt sé að skíða í brekkunni, við þurfum að hreinsa grjóthreinsa þetta allt saman fyrir seasonið. En maður sér alveg að það eru spýtur og sprek hérna, þannig að það er líklegt að þetta sé eitthvað úr snjógirðingunum."

Höfðuð þið einhvern grun um að þetta gæti gerst? spyr blaðamaður Feykis.

"Nei, ekki nokkurn sko," segir Sigurður að lokum.

Uppfært: Sigurður Bjarni hefur nú staðfest það við blaðamann Feykis að veggurinn í lóninu hafi gefið sig með þeim afleiðingum að skriðan fór af stað. 

/SMH

 

Fleiri fréttir