Skíðasvæðið lokað en veðurspáin betri á morgun
Skíðasvæðið í Tindastóli var ekki opið í dag vegna leiðindaveðurs í fjallinu en hátíðin var sett í Sauðárkrókskirkju í gær. Boðið er upp á sögustund með Stínu svæðisleiðsögumanni á Kaffi Krók núna, milli kl. 15 og 17 og pizzahlaðborð verður á Ólafshúsi kl 19.
Samkvæmt vef Svf. Skagafjarðar er betri spá fyrir morgundaginn og þá hefst fjörið í fjallinu kl 11. „Tónlist um óma, grillað verður í hádeginu, björgunarsveitin verður með magnað atriði ásamt fleiri uppákomum,“ segir á vefnum
Opið verður í Minjahúsinu á Króknum af þessu tilefni á morgun milli kl. 15 og 17 og sundlaug Sauðárkróks verður opin til kl 18.
Laugardagurinn endar með kvöldvöku í reiðhöllinni Svaðastöðum kl 19:30 með skemmtun fyrir alla fjölskylduna.
Á sunnudaginn opnar skíðasvæðið kl 11 og opið verður til kl 16. Þá er einnig opið í Glaumbæ og Áskaffi milli kl 12 og 17.