Skoðar upplifun og líðan íbúa Skagafjarðar eftir desemberóveðrið 2019
Sem hluta af lokaverkefni Soffíu Helgu Valsdóttur í landfræði við Háskóla Íslands biðlar hún til Skagfirðinga að taka þátt í könnun um hvaða áhrif óveðrið í desember árið 2019 hafi haft á íbúa fjarðarins. Til að fá marktæka niðurstöðu þarf hún að ná til sem flestra íbúa héraðsins.
„Kæru íbúar Skagafjarðar!
Það væri mér mikils virði ef þið sæjuð ykkur fært að svara þessari spurningakönnun fyrir mig sem er hluti af lokaverkefni mínu í landfræði við Háskóla Íslands. Ég er að kanna hvaða áhrif óveðrið í desember árið 2019 hafði á íbúa fjarðarins,“ segir í tilkynningu Soffíu Helgu.
Könnunin er 37 spurningar sem tekur u.þ.b. 10-15 mínútur að svara og er hún nafnlaus. Fyllsta trúnaðar er gætt og ekki er hægt að rekja svör til einstakra svarenda en könnuninni verður lokað á miðnætti mánudaginn 26. júlí næstkomandi. Allar ábendingar eru vel þegnar, segir Soffía Helga og hægt er að koma þeim til skila á netfangið, shv1@hi.is.
Könnunina er hægt að nálgast á meðfylgjandi slóð: https://forms.gle/wov9G8VCh6DJTzHx6