Sluppu vel úr bílveltu á Holtavörðuheiði
Tveir leikmenn Tindastóls, Pétur Rúnar Birgisson og Viðar Ágústsson, ásamt þremur stúlkum sem voru með í för, sluppu vel þegar þau lentu í bílveltu á leið heim eftir körfuboltaleik sl. miðvikudag.
Systir Viðars, sem ók bílnum, missti stjórn á honum í hálku á Holtavörðuheiði með þeim afleiðingum að hann valt.
„Bíllinn er gjörónýtur og það er í raun ótrúlegt hvað við sluppum vel því þetta leit ekkert svakalega vel út,“ sagði Pétur í samtali við Karfan.is daginn eftir.
Pétur sagði í samtali við Feyki í gær að ein stúlknanna hefði fengið vægan heilahristing en að öðru leiti hefðu þau öll sloppið mjög vel.