Smábátahöfnin á Króknum lögð og ís hleðst upp í fjörum :: Myndband

Smábátahöfnin á Sauðárkróki í dag. Mynd: PF.
Smábátahöfnin á Sauðárkróki í dag. Mynd: PF.

Það er föstudagur 10. mars 2023 upp úr hádegi þegar Feykir kíkti í fjöruna við Krókinn. Ekki kaldasti dagur ársins en fjaran hvít af ís og smábátahöfnin lögð. Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands mældist frostið á sjálfvirkri veðurstöð á Sauðárkróksflugvelli kl. 08:00 -9,9 °C og blés að norð-norð-austan 9 m/s. Sjávarhiti samkvæmt mæli Skagafjarðarhafna -0,42°C.

Ekkert lát verður á kuldatíð samkvæmt spá Veðurstofunnar en fyrir Strandir og Norðurland vestra er gert ráð fyrir norðan og norðaustan 5-10 m/s og dálítil él á morgun. Frost 7 til 14 stig.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á sunnudag:
Norðlæg átt 5-15 m/s, hvassast suðaustanlands. Dálítil él norðan- og austanlands, en annars yfirleitt léttskýjað. Frost 6 til 16 stig, kaldast inn til landsins.

Á mánudag:
Norðlæg átt, 8-15 m/s, hvassast austantil. Snjókoma um austanvert landið, él með norðurströndinni, en bjartviðri suðvestanlands. Frost 4 til 15 stig.

Á þriðjudag og miðvikudag:
Norðlæg átt með éljum eða snjókomu á norðurhelmingi landsins, en bjart með köflum syðra. Talsvert frost um land allt.

Á fimmtudag:
Hæg norðlæg eða breytileg átt og yfirleitt bjartviðri, en skýjað norðanlands. Áfram kalt í veðri.

Á föstudag:
Líklega suðlæg átt og skýjað með köflum.

Spá gerð: 10.03.2023 21:00. Gildir til: 17.03.2023 12:00.

Hann er assgoti napur þessa dagana.

Posted by Páll Friðriksson on Föstudagur, 10. mars 2023

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir