Snjómokstur í dreifbýli
Á vef Skagafjarðar kemur fram að ný símanúmer til að óska eftir snjómokstri í dreifbýli tóku gildi um áramót.
Nú munu þjónustumiðstöð og umhverfis- og landbúnaðarfulltrúi taka við öllum óskum um vetrarþjónustu, sem verður óbreytt frá því sem verið hefur, en allar upplýsingar er að finna hér á heimasíðu sveitarfélagins. Mokstri á heimreiðum í dreifbýli hefur verið hætt á vegum sveitarfélagsins, nema um sérstakar aðstæður sé að ræða.