Sóldís söng fyrir fullum sal á konudagstónleikum

Allt frá stofnun Kvennakórsins Sóldísar hefur verið efnt til tónleika, þeir fyrstu árið 2011, konudaginn sem jafnframt er fyrsti dagur góu. Ekki var brugðið útaf þeirri venju í ár og voru þeir haldnir sem fyrr í Menningarhúsinu Miðgarði sl. sunnudag.
Ávallt hefur verið vel mætt og var það einnig nú. Salurinn þéttskipaður ánægðum gestum sem klappaði vel fyrir kórnum í lok tónleika. Yfirskrift tónleikanna í ár var Ó, leyf mér þig að leiða sem er tilvitnun í fyrsta lagið sem kórinn söng á tónleikunum Draumalandið eftir Sigfús Einarsson við ljóð Jóns Trausta. Á dagskrá voru sextán lög, innlend sem erlend, og má fullyrða að kórinn hafi sjaldan verið betri en nú. Söngstjóri var Helga Rós Indriðadóttir, undirleikari Rögnvaldur Valbergsson og einsöngvarar þær Ólöf Ólafsdóttir og Íris Olga Lúðvíksdóttir. Meðfylgjandi myndir voru teknar sl. sunnudag sem og myndbandið sem deilt er á Facebooksíðu kórsins.
Posted by Jóhann G. Frímann on Sunnudagur, 24. febrúar 2019