Söngkeppni Friðar í Miðgarði
Söngkeppni Friðar verður í Miðgarði í Varmahlíð föstudaginn 12. desember á milli kl. 19:00-21:00. Sex atriði eru skráð í keppnina, eitt frá Varmahlíðarskóla, tvö frá Grunnskólanum austan Vatna og þrjú frá Árskóla Sauðárkróki.
Samkvæmt fréttatilkynningu frá Húsi frítímans verða vegleg verðlaun í boði fyrir sigurvegara keppninnar en þau eru frá Tónabúðinni á Akureyri, stúdíótímar hjá Rögnvaldi Valbergssyni, gjafabréf frá Hard Wok og gjafabréf frá Sauðárkróksbakaríi.
Allir eru velkomnir að koma og horfa á keppnina og aðgangur er ókeypis.